Tilnefningar fyrir verk ársins 2009

UMSLAG ÁRSINS:

  •     ADHD – ADHD - Ísak Winther hannaði. Tæknilegur mínimalismi af bestu gerð. Hér eru form og fletir skekktir án þess þó að að maður taki eftir því, minna verður meira og niðurstaðan er ótilgerðarleg umgjörð sem á vel við tónlistina.
  •     Stop! Hand Grenade in the Name of Crib Death ‘nderstand - Sudden Weather Change - Oddur Guðmundsson, Logi Höskuldsson, Benjamin Mark Stacey, Klængur Gunnarsson, Bergur Andersen, Dagur Sævarsson og Hörður Sveinsson hönnuðu. Eins og tónlistin, er umslagið hörð, strákaleg og skemmtilega kæruleysisleg strákalist. Þarna er líka mikil fjölbreytni innan rammans, enda unnið í samvinnu af öllum meðlimum sveitarinnar.
  •     IV – Hjálmar - Davíð Örn Halldórsson hannaði. Málverk Davíðs Arnar renna furðulega vel við ferðaljósmyndir sveitarinnar úr heimahögum reggísins, Jamaíku. Portrett af flytjendunum ásamt lagatextum gerir heildarmyndina síðan mátulega persónulega.
  •     Einn heima ep - Prins Póló - Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló) hannaði. Frontur og bakkápa virka á mann eins og tveir góðir atómbrandarar. Íslenskur einkahúmor og einfaldur absúrdismi haldast hönd í hönd.
  •     Swordplay and guitarslay - Retrön - Arnar Ingi Viðarsson, Kári Halldórsson og Kolbeinn Hugi Höskuldsson hönnuðu. Nördaleg einlægni geislar af þessari vísun í Dungeons & Dragons spil níunda áratugarins. Umslagið er umbreytanlegt í kastalavirki með sýki og öllu. Mjög viðeigandi með ævintýralegum metalnum á plötunni.
  •     Riceboy Sleeps - Jónsi og Alex - Jón Þór Birgisson og Alex Somers hönnuðu. Dulúð er ríkjandi í umslagi þessu, sem hannað er af flytjendunum sjálfum. Forsíðumyndin kallar fram draumkennda fegurð og ljúfsáran óhugnað í senn.
  •     Sturlunga - Voces Thules - Brynja Baldursdóttir hannaði.  Umslag sem þjónar tilgangi, bæði menningarlega og fagurfræðilega. Í þessum þarfa pakka er að finna forna kvæðatexta ásamt hugleiðingum fræðifólks. Örlygstaðabardaga eru gerð góð skil og þjóðararfinum þjónað.


BJARTASTA VONIN:

  •     Pascal Pinon.  Þrátt fyrir að hæverska og jafnvel feimni hafi verið áberandi í fari hljómsveitarinnar Pascal Pinon hefur hún skyggt á marga háværari tónlistarmenn. Tónlistin er lágstemmd og yfirlætislaus, dálítið ,,skólastofuleg", en skemmtilega útsett og krydduð launfyndnum, skemmtilegum og aðallega íslenskum textum.
  •     Sudden Weather Change.  Kraftmikil gítarsveit undir áhrifum frá amerísku jaðarrokki. Fyrsta platan þeirra er ekkert slor, en jafnast þó ekki á við kraftinn og spilagleðina sem einkennir þá fimmmenninga á tónleikum.
  •     Sykur sýndi það bæði á sinni fyrstu plötu, Frábært eða frábært og á tónleikum að hún er ein af skemmtilegri poppsveitum landsins. Flottir taktar, frísklegur hljómur og lífleg sviðsframkoma eru aðalsmerki Sykurs.
  •     Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari hefur sýnt það og sannað að hún er glæsilegur flytjandi, með mikið næmi og skilning á þeim verkefnum sem hún tekst á við en tæp tvö ár eru liðin frá því hún lauk námi við Juilliard-tónlistarskólann í New York. Hún hefur á valdi sínu víðfema verkaskrá en hún hefur einbeitt sér að túlkun og flutningi samtímatónlistar meðfram tónlist fyrri tíma.
  •     Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari, snýr aftur úr framhaldsnámi í músík og stimplar sig inn með öflugu tónleikahaldi og plötu með eigin tónlist.

 

RÖDD ÁRSINS:

  •     Ágúst Ólafsson, fyrir frábæra frammistöðu á óperusviði og á ýmsum tónleikum. Ágúst býr yfir mikilli dýpt og breidd sem túlkandi.
  •     Haukur Heiðar Hauksson, fyrir tilfinningaríkan og vel útfærðan söng. Haukur Heiðar syngur áreynslulaust og lyftir tónlistinni með góðri túlkun sinni.   
  •     Jóhann G. Jóhannsson, fyrir magnaða endurkomu. Jóhann G. var forsprakki Óðmanna og stóð upp úr sem einn besti poppsöngvari landsins. Þrátt fyrir langt hlé sýnir Jóhann G. að hann er enn í fremstu röð.  
  •     Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fyrir glæsilega frammistöðu í Eurovision. Jóhanna Guðrún er búin að vera góð lengi og sýndi það þegar hún fékk stóra tækifærið að hún er fyrsta flokks.
  •     Sigríður Thorlacius, fyrir söng sinn með Hjaltalín og á plötunni Á ljúflingshól með Heiðurspiltum. Sigríður hefur fallega rödd og skýra og áreynslulausa framsetningu.
  •     Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla), fyrir söng sinn með hljómsveitinni Múm. Afar persónuleg og spennandi söngkona sem er sífellt að bæta sig.
  •     Þóra Einarsdóttir, fyrir hlutverk sín í Íslensku óperunni og í titilhlutverkinu í óratoríunni Cecilia. Þóra Einarsdóttir er söngkona á heimsmælikvarða.

 

TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS:

  •     Davíð Þór Jónsson, fyrir fjölþreifni til hljóðfæra, fjölhæfni í stíltegundum tónlistarinnar og eiginleikann að virðast geta komið fram á mörgum stöðum í einu.
  •     Ghostigital, fyrir tónleika á Iceland Airwaves.
  •     Hjaltalín, fyrir tónleika á Listahátíð í Rvk og í Fríkirkjunni á Iceland Airwaves
  •     Retro Belfast (Retro Stefson og FM Belfast), fyrir frumlega samræmingu og samruna á tónleikum
  •     Sinfóníuhljómsveit Íslands,  fyrir eftirminnilega tónleika með Gennady Rozhdestvensky á Listahátíð og Daníel Bjarnasyni og Víkingi Heiðari á Myrkum Músíkdögum.
  •     Vikingur Heiðar Ólafsson, fyrir magnaðan píanóleik á tónleikum sínum á árinu, bæði sem einleikari og með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

HÖFUNDUR ÁRSINS:

  •     Daníel Bjarnason, fyrir tónverkin á plötunni Processions. Tónlist Daníels er kraftmikil, dansar á mörkum ótal landamæra og er afar persónuleg.
  •     Einar Tönsberg, fyrir tónverkin á plötunum Antidode með Eberg og Don't be a stranger með Feldberg. Einar kann betur en flestir þá list að setja saman popplög sem virka. Hann er mjög melódískur, en líka frjór og leitandi þegar það kemur að hljómi og útsetningum.
  •     Hafdís Bjarnadóttir, fyrir tónverkin á plötunni Jæja. Þó að tónsmíðar Hafdísar á Jæja fari út um víðan völl og greina megi í þeim áhrif jafnt frá djassi, þjóðlegri tónlist og poppi þá eiga þær það sameiginlegt að vera góð blanda af smekkvísi og tilraunamennsku.
  •     Hildur Guðnadóttir, fyrir tónverkin á plötunni Without sinking. Djörf, heildstæð og afar persónuleg plata.
  •     Högni Egilsson og Hjaltalín með aðstoð Róberts Reynissonar og Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar, fyrir tónverkin á plötunni Terminal með Hjaltalín. Fjölbreytt úrvinnsla á hinu hefbundna í bland við kraftmikla nýsköpun.   
  •     Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes, fyrir tónverkin á plötunni Sing along to songs you don't know með múm. Grípandi, tilraunakennd, framsækin og full af lífsgleði.


TÓNVERK ÁRSINS:

 

  •     Bow to string, eftir Daníel Bjarnason. Verk Daníels er geysifallegt og um leið nútímalegt og persónulegt. Verkið verður án efa einn af hornsteinum verkasafns Daníels og er um leið þýðingarmikil viðbót í safn íslenskrar sellótónlistar.  Verkið er rómantík á nútíma vísu.
  •     Bæn, eftir Gunnar Þórðarson.  Í verkinu sýnir Gunnar Þórðarson sannarlega hvers af honum má vænta á sviði klassískrar tónlistar. Bæn er íhugult verk, melódískt og ljóðrænt.
  •     Cecilia, eftir Áskel Másson. Óratoría Áskels um heilaga Sesselju, verndardýrling tónlistarinnar er áhrifamikið verk markað ljóðrænni litadýrð og dulrænni dýpt. Í verkinu skapar Áskell heillandi hljóðheim og þaulhugsuð form – nútímalegan stíl, þótt efniviðurinn sé byggður á fornum minnum.
  •     Processions, eftir Daníel Bjarnason.  Glæsilegur píanókonsert þar sem Daníel teflir fram andstæðum blæbrigðum þess næma og kyrrláta gegn krafti og ofsa og hrífandi blæbrigðum í samspili einleikara og hljómsveitar.

 

LAG ÁRSINS:

  •     Crazy like a bee, lag og texti: Egill Sæbjörnsson, flytjandi: Egill S.
  •     Digging up a tree, lag og texti: Helgi Hrafn Jónsson,flytjandi: Helgi Hrafn Jónsson.
  •     Dreamin‘, lag og texti: Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg, flytjendur: Feldberg.
  •     Suitcase man, lag: Hjaltalín, texti: Örvar Þóreyjarson Smárason, flytjendur: Hjaltalín.
  •     This heart, lag og texti: Bloodgroup, flytjandi: Bloodgroup.
  •     Taktu þessa trommu, lag og texti: Þorsteinn Einarsson, flytjendur: Hjálmar.

 

SÍGILD TÓNLIST OG SAMTÍMATÓNLIST – PLATA ÁRSINS:

  •     By the throat - Ben Frost, útgefandi: Bedroom Community.  Tónlist Ben Frost er kraftmikil og djúphugsuð án nokkurra málamiðlana. Höfundareinkenni hans eru skýr; áhugaverður samruni lífrænna og ólífrænna hljóða, hávaðatónlistar, sígildrar tónlistar, rafrænu. Þetta er sjötta breiðskífa Ben Frost. Plöturnar eiga það sammerkt að mynda eina samfellda heild og nýja platan er engin undantekning þar á. Hljóð- og eftirvinnsla eins og best verður á kosið og myndræn umgjörð plötunnar er í nánu samtali við tónlistina sjálfa.
  •     Debut - Víkingur Heiðar Ólafsson, útgefandi: Hands On Music. Verkefnaval Víkings Heiðars á þessari plötu er metnaðarfullt og hann tekst á við verk Beethovens og Brahms af mikilli dýpt og þokka. Eins og heiti plötunnar ber með sér er þetta fyrsta plata Víkings en hann hefur fyrir nokkru markað sér sess sem einn af færustu og áhugaverðustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þrátt fyrir ungan aldur.   
  •     Guiliani, Sor, Aguado, Carcassi - Kristinn Árnason, útgefandi: 12 tónar. Kristinn H. Árnason leikur af miklu listfengi og næmi fyrir blæbrigðum í stíl. Hann sýnir hér enn og aftur með tæknilegri færni og persónulegri túlkun sinni á klassískum gítarverkum, að hann er í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna.  
  •     Haydn píanókonsertar - Edda Erlendsdóttir píanóleikari og Sinfóníuhljómsveit Íslands, útgefandi: Erma. Edda Erlendsdóttir túlkar fjóra píanókonserta Haydns af mikilli fágun og innlifun en hún hefur áður sýnt næman skilning á höfundarverki hans. Túlkun Sinfóníuhljómsveitar Íslands er sömuleiðis leikandi létt og býr yfir smitandi leikgleði. Hljóðritun afbragðs góð
  •     Processions - Daníel Bjarnason, útgefandi: Bedroom Community. Á þessari plötu er að finna þrjú verk eftir Daníel Bjarnason en hann hefur markað sér sess sem eitt af áhugaverðustu tónskáldum af yngri kynslóð. Tónlist hans dansar á mörkum ótal landamæra og er illflokkanleg. Verkin þrjú eru ekki tengd innbyrðis en mynda engu að síður áhugaverða og fallega heild. Flutningur einleikara og Sinfóníuhljómsveitar Íslands er í hæsta gæðaflokki og það sama má segja um hljóðvinnslu og umgjörð plötunnar.
  •     Without sinking - Hildur Guðnadóttir, útgefandi: Touch. Þetta er önnur breiðskífa Hildar en áður sendi hún frá sér plötuna Lost in Hildurness árið 2006. Hljóðheimurinn á nýju plötunni er heillandi og ákaflega sterkur og verkin á plötunni mynda samfellda og sannfærandi heild þar sem selló tónlistarkonunnar er í lykilhlutverki. Hildur skapar sér sérstöðu með þessu djarfa verki og stígur fram sem þroskaður listamaður. Umgjörð og hljóðvinnsla ákaflega vel úr garði gerð.

 

JAZZPLATA ÁRSINS:

  •     Adhd - Adhd, útgefandi ADHD. Lágstemmd og spennuþrungin í senn. Ákaflega vel spilandi kvartett sem galdrar fram stemmningar í hróplegu ósamræmi við nafn hljómsveitarinnar.
  •     Jæja - Hafdís Bjarndóttir, útgefandi: Hafdís Bjarnadóttir. Hafdís hikar ekki við að leika sér á landamærum saminnar og spunninnar tónlistar. Nýstárlegar hljóðfærasamsetningar og spennandi hljóðheimur.
  •     Mæri - Árni Heiðar Karlsson, útgefandi: Dimma. Melódískur jazz, framandi og kunnuglegur í senn. Píanótríóið er einn af hornsteinum jazzins og Árni Heiðar tekst á við þetta krefjandi form af næmni og smekkvísi.
  •     Spirit of Iceland - Stórsveit Reykajvikur ásamt Bob Mintzer, útgefandi: Stórsveit Reykjavíkur. Stórsveitin festir sig í sessi sem ein mikilvægasta hljómsveit landsins. Með aðkomu Mintzers að íslenskum þjóðararfi sannast að glöggt er gests augað. Framúrskarandi flutningur og sérlega áhugavert hvernig þjóðlegt efni getur tekið alþjóðlegum stakkaskiptum.

 

POPPPLATA ÁRSINS:

  •     Amanita Muscaria - Lights on the Highway, útgefandi: Lights on the Highway.
    Með Amanita Muscaria sannar hljómsveitin, að hún hefur frá útkomu fyrri plötu sinnar (2005) þroskast frá því að vera efnileg og upp í efsta gæðaflokk í íslenskri dægurlagatónlist. Tónlistin er einhverskonar blanda af hippatónlist 6. og 7. áratugarins og gruggtónlist Seattle-sveitanna frá þeim 9. og 10.; lagasmíðar og útsetningar eru fjölbreittar, hljóðfæraleikur til fyrirmyndar og söngur einstaklega góður.
  •     Don't be a stranger - Feldberg, útgefandi: Cod Music. Samstarf Einars „Eberg“ Tönsberg og Rósu Ísfeld úr Sometime skilaði einni af bestu popp-plötum ársins. Grípandi lagasmíðar, flottur hljómur og karakterríkur söngur.
  •     Dry land - Bloodgroup, útgefandi Record Records. Með Dry Land hætti Bloodgroup að vera efnileg og varð góð. Þau hafa ekki glatað smekknum fyrir stuðmiklu rafpoppi, en á Dry Land er hljóðheimurinn ríkari og lagasmíðarnar þróaðri.
  •     Easy music for difficult people -Kimono, útgefandi: Kimi. Eins og áður eru sérkenni Kimono á Easy music for difficult people, góðar lagasmíðar og flottar pælingar í hljóðfæraleik og útsetningum. Hljómsveit með sterk karaktereinkenni, en samt í þróun.
  •     Get it together - Dikta, Útgefandi: Kölski. Dikta fetar sig áfram upp á við í einkennandi lagasmíðum, þéttri spilamennsku og firnagóðri framsetningu á Get it together. Hljómurinn er til stakrar fyrirmyndar og allt yfirbragð plötunnar mjög sannfærandi.
  •     Sing along to songs you don't know - Múm, útgefandi: Borgin. Sing along to songs you don't know sýnir að Múm er hljómsveit í stöðugri þróun. Tónlistin er mun fjölbreyttari en áður, en jafn framsækin. Hugmyndaauðgi Múm-liða kemur bæði fram í hljóðfæraskipaninni, útsetningunum og sjálfum lagasmíðunum.
  •     Terminal - Hjaltalín, útgefandi: Borgin. Á Terminal heldur Hjaltalín áfram að vinna með kammerpoppið sem þau kynntu til sögunnar á Sleepdrunk Seasons, en á Terminal eru lögin fágaðri og meira unnin auk þess sem á plötunni má greina áhrif frá söngleikjatónlist og eðalpoppi sjöunda áratugarins. Sérstaklega heilsteypt og öflug plata.  
  •     IV - Hjálmar, útgefandi:Borgin. Eftir þrjár vel heppnaðar alíslenskar reggíplötur fóru Hjálmar til höfuðborgar reggítónlistarinnar, Kingston á Jamaíka til að vinna plötu númr fjögur. Það heyrist á IV. Lagasmíðarnar eru jafn traustar og áður, en nú er hljóðheimurinn litaður af ósviknum hljóðversgöldrum frá Kingston.


Dómnefnd:

Andrea Jónsdóttir
Bergþóra Jónsdóttir
Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Einar Bárðarson
Hugleikur Dagsson
Jónatan Garðarsson
Trausti Júlíusson
Ritari: Pétur Grétarsson