Tilnefningar ITV fyrir verk ársins 2010 ásamt umsögnum dómnefnda.
Umslag ársins
Sigurður Eggertsson fyrir Pólýfónía með Apparat Organ Quartet
Hallmar Freyr Þorvaldsson fyrir Baldur með Skálmöld
Hrafn Gunnarsson fyrir Helvítis fokking fönk með Stórsveit Samúels J Samúelssonar
Sara Riel fyrir The end is as near as your teeth með Swords of chaos
Lilja Birgisdóttir og Inga Birgisdóttir fyrir Go með Jónsa
Tónlistarflytjandi ársins
Ómar Guðjónsson gítarleikari fyrir öflugt tónleikahald á síðasta ári, bæði með eigin hljómsveitum og fjölmörgum öðrum listamönnum.
Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuill fluttu þrjá síðustu ljóðaflokka Schubert með viku millibili á Listahátíð 2010. Áhrífaríkur flutningur þeirra á þessum helstu ljóðaflokkum tónbókemenntana er þeim sem á hlýddu ógleymanleg stund.
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari hefur þrátt fyrir ungan aldur fest sig í sessi sem einn okkar albesti strengjaleikari og var flutningur hennar á Árstíðum Vivaldis og Piazolla með Sinfóníuhljómsveit Íslands hreint út sagt frábær.
Agent Fresco fyrir öflugt tónleikahald þar sem hverjir tónleikar eru eins og þeir síðustu.
Jónsi fyrir ótrúlega þétt og afkastamikið ár sem gat af sér tvær plötur og tónleikaferðalag um heim allan.
Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar fyrir að núllstilla afróbítklukkuna á Íslandi. Nú er sami tími í Lagos og á Laugalæknum.
Rödd ársins
Jóhann Smári Sævarsson fyrir magnaða túlkun á Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar og Vetrarferð Schuberts. Djúp og safarík rödd Jóhanns gleymist engum sem á hana hafa hlýtt.
Þóra Einarsdóttir fyrir hvern listræna sigurinn á fætur öðrum. Þóra býr yfir einstakri raddtækni og miklu innsæi og tilfinningadýpt. Söngkona í fremstu röð.
Kristinn Sigmundsson stendur á hátindi síns ferils. Auk þess að syngja reglulega á helstu óperusviðum heimsins kom hann fram á hátíðartónleikum á Listahátíðar 2010 og söng þar margar af þeim aríum sem honum standa nærri.
Arnór Dan Arnarson. Ekki bara að sjarminn leki af honum þegar hann er á sviði heldur sveiflar hann sér úr ástríðufullum ofsaöskrum yfir í blíðasta melódíusöng eins og að drekka vatn.
Jón Þór Birgisson. Jónsi notar sérkennilega rödd sína til að túlka hin ólíkustu tilfinningalegu blæbrigði, veri það fjör og gleði eða sorg og söknuður. Þetta gerir hann með texta - eða án!
Ólöf Arnalds sækir í gamla íslenska þjóðlagahefð og bætir um betur og fer algjörlega sínar eigin leiðir í söng og túlkun. Hún skapar töfrandi brothættan söngvef sem á engan sinn líkan.
Bjartasta vonin
Ari Bragi Kárason trompetleikari er einhver efnilegasti trompetleikari sem fram hefur komið um árabil. Blæs ferskum vindum inn í jazzlíf þjóðarinnar.
Sóley Stefánsdóttir söngkona og lagasmiður. Plata hennar Theater Island ber með sér óvenju þroskaðan og framsækin hljómheim.
Herdís Anna Jónasdóttir sópransöngkona hefur vakið mikla athygli að undanförnu bæði hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi flutning og listrænan þroska.
Hljómsveitin Valdimar datt af himnum ofan að því er virtist með plötu sem hljómar eins og þriðja plata sveitarinnar fremur en frumburður.
Hljómsveitin Just another snake cult. Þórir Bogason, sem stendur á bakvið nafnið, stendur jafnhliða því besta sem er að gerast í tilraunapoppi erlendis með þessari plötu sem glitrar af hugmyndagnægð og glúrinni úrvinnslu.
Textahöfundur ársins
Bjartmar Guðlaugsson fyrir textana á Skrýtin veröld með Bjartmari og Bergrisunum.
Róbert Örn Hjálmtýsson fyrir textana á Lúxus upplifun með hljómsveitinni Ég.
Andri Ólafsson og Steingrímur Teague fyrir textana á Búum til börn með Moses Hightower.
Haraldur F Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson fyrir textana á Meira pollapönk með Pollapönk.
Bragi Valdimar Skúlason fyrir texta fönkóperunnar Diskóeyjunnar og á jólaplötum Baggalúts og Memfismafíunnar.
Jónas Sigurðsson fyrir textana á Allt er eitthvað með Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar
Tónhöfundur ársins
Jóel Pálsson fyrir lögin á hljómplötunni Horn.
Skúli Sverrisson fyrir lögin á hljómplötunni Sería 2.
Jón Þór Birgisson fyrir lögin á hljómplötunni Go.
Pétur Hallgrímsson fyrir lög sín á hljómplötunni Let me be there með Ellen.
Ólöf Arnalds fyrir lögin á hljómplötunni Innundir skinni.
Bjartmar Guðlaugsson fyri lögin á hljómplötunni Skrýtin veröld.
Lag ársins
"Go do" af hljómplötunni Go
Höfundur: Jón Þór Birgisson. Flytjandi: Jónsi. Útgefandi: XL Recordings og Smekkleysa.
"Crazy car" af hljómplötunni Innundir skinni
Höfundur: Ólöf Arnalds. Flytjendur: Ólöf Arnalds og Ragnar Kjartansson. Útgefandi: One little Indian og Smekkleysa.
"Það geta ekki allir verið gordjöss" úr fönkóperunni Diskóeyjuni
Höfundur: Bragi Valdimar Skúlason. Flytjendur: Ljóti kallinn og Rut (Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigríður Thorlacius) ásamt Memfismafíu Diskóeyjunnar. Útgefandi: Sena.
"113 Vælubíllinn" af hljómplötunni Meira pollapönk
Höfundur: Haraldur F. Gíslason. Flytjendur: Pollapönk.Útgefandi: Record Records.
"Konan á allt" af hljómplötunni Skrýtin veröld
Höfundur: Bjartmar Guðlaugsson. Flytjendur: Bjartmar og Bergrisarnir. Útgefandi: Geimsteinn.
"Hamingjan er hér" af hljómplötunni Allt er eitthvað
Höfundur: Jónas Sigurðsson. Flytjendur: Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtiðarinnar.
Tónverk ársins
Hrím - fyrir hljómsveit
Höfundur: Anna Þorvaldsdóttir.
Hrím er þétt ofið og afar áhrifaríkt verk, tónmálið sterkt, persónulegt og sannfærandi.
Allt hefur breyst, ekkert hefur breyst - fyrir píanó og hljómsveit
Höfundur: Haukur Tómasson. Flytjendur: Víkingur Heiðar Ólafsson og Caput.
Litríkur og sérlega heillandi píanókonsert, fullur af blæbrigðum og grípandi hendingum sem mynda afar sterka heild.
Kvartett - fyrir fiðlu, klarinett, selló og píanó
Höfundur: Þórður Magnússon.
Þórður vinnur frábærlega með liti ólíkra hljóðfæra og skapar tregafullar og magnaðar laglínur í eftirminnilegu tónverki.
Hljómplata ársins - Sígild og samtímatónlist
Hymnodia Sacra - Íslenskt sálmasafn frá 18. öld
Flytjendur: Kammerkórinn Carmina, Nordic Affect, Árni Heimir Ingólfsson. Útgefandi: Smekkleysa.
Platan byggir á merkilegum rannsóknum á tónlistararfi liðinna alda en hér tekst hið vandasama, að flétta saman rannsóknum og tónlistarflutningi svo úr verður einstaklega falleg og lifandi túlkun á tónlist liðinna alda. Mjög vel heppnuð útgáfa.
Iepo Oneipo/Heilagur draumur eftir John Tavener
Flytjendur: Kammerkór Suðurlands, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrólfur Sæmundsson, Margrét S Stefánsdóttir, Hilmar Örn Agnarsson. Útgefandi: Smekkleysa.
Stórgóð og innileg túlkun Hilmars Arnar Agnarssonar, Kammerkórs Suðurlands, einsöngvara og hljómsveitar á upphöfnum og heilandi tónverkum Tavener sem geta, þegar best lætur, hrifið hlustanda með sér yfir á aðra plánetu. Afbragðs plata.
Hallgrímspassía - Tónlist Sigurðar Sævarssonar við Passíusálma Hallgríms Péturssonar
Flytjendur: Schola Catntorum, Caput, Jóhann Smári Sævarsson, Hörður Áskelsson. Útgefandi: Aspir.
Afar sterkt og innilegt tónverk Sigurðar Sævarssonar nýtur sín mjög vel í frábærum flutningi Schola Cantorum og Caput. Fáguð, djúp og hrífandi plata
Sería II - Tónlist Skúla Sverrissonar fyrir strengjahljóðfæri, blásara, slagverk, hljómborð og fleira. Flytjendur: Skúli Sverrisson, Davíð Þór Jónsson, Amadeo Paceo, Eyvind Kang, Anthony Burr, Kristín Anna, Ólöf Arnalds, Hildur Guðnadóttir, Óskar Guðjónsson. Útgefandi Sería Music. Skúli Sverrisson heldur áfram að vinna með svipaða eiginleika í fyrri Seríuplötu sinni. Hér er samspilið og samvinnan í fyrirrúmi þar sem Skúli og frábærir samstarfsmenn hans mynda fínofinn og á köflum rammgöldróttan tónvef. Mjög áhrifaríkt verk.
Flute Music - Tónlist eftir Toshio Hosokawa. Flytjendur: Kolbeinn Bjarnason, Caput, Snorri Sigfús Birgisson. Útgefandi: Naxos
Kolbeinn Bjarnason sýnir enn og aftur hvílíkur afreksmaður hann er á sviði tónlistarinnar. Hér ræðst hann í flutning á öllum flautuverkum japanska tónskáldsins Toshio Hosokawa en verkin, sem stundum virðast látlaus og einföld, krefjast yfirburða færni og næmi flytjenda. Afar merkileg útgáfa í alla staði.
Hljómplata ársins - Jazz
Horn - Jóel Pálsson
Flytjendur: Jóel Pálsson, Ari Bragi Kárason, Eyþór Gunnarsson, Davíð Þór Jónsson, Einar Scheving. Útgefandi: Flugur. Frumlegar og margslungnar tónsmíðar. Þróttmikil sveit afbragðsgóðra hljóðfæraleikara sem vinna vel saman og skapa einkar blæbrigðaríkt og heildstætt verk.
Reginfirra - Reginfirra
Flytjendur: Ingimar Andersen, Kristján Tryggvi Martinsson, Magnús Trygvason Elíassen, Daníel Friðrik Böðvarsson. Útgefandi: Firra. Tónlist sem iðar af fjöri og tilraunagleði. Ungir og bráðefnilegir tónlistarmenn sem gefa mikil fyrirheit.
The Dream - Sunna Gunnlaugs
Flytjendur: Sunna Gunnlaugs,Loren Stillman, Eivind Opsvik, Scott McLemore. Útgefandi: Sunny Sky Records. Lagræn og seiðandi djasstónlist með áleitinni sveiflu og krydduð með nokkrum stuttum frjálsum spunaköflum.
Hljómplata ársins - Rokk/Popp
A long time listening - Agent Fresco
Útgefandi: RecordRecords
"Frábær plata frá bestu rokksveit landsins nú um stundir. Það hefur verið unun að fylgjast með Agent Fresco vaxa og dafna síðan strákarnir unnu Músíktilraunir með glans fyrir tveimur og hálfu ári. Tilraunir leitandi tónlistarskólastráka eru í dag orðnar að fullburða, framsæknu rokki og prýðir það þennan frábæra frumburð hennar."
Go - Jónsi
Útgefandi: Frakkur/Smekkleysa
"Jónsi notar öll trikkin sem hann hefur lært á Sigur Rósar ferlinum og bætir við glitrandi perlum úr fjársóðskistunni sinni. Útkoman er slík gersemi að það er leitun að annarri eins plötu. Reynsla og öryggi fara saman við ótrúlega næma söngtúlkun, stórfína spilamennsku og fágaða vinnslu."
Allt er eitthvað - Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar
Útgefandi: Cod Music
"Jónas fylgir Þar sem malbikið svífur mun ég dansa farsællega eftir. Líkt og á fyrri plötu er allt þægilega á skakk og skjön, lögin, krydduð með brassi, óhljóðum og í einu tilfelli Sinclair Specrum-tölvu fara í óvæntar áttir, statt og stöðugt og maður situr með sperrt eyrun frá upphafi til enda."
Innundir skinni - Ólöf Arnalds
Útgefandi: One Little Indian/Smekkleysa
"Ólöf grípur átjan mílna skóna og tekur risaskref fram á við eftir að hafa sannað sig svo um munar með plötunni Við og við. Seiðandi melódíurnar stíga línudans á mörkum dulúðar, angurværðar og einlægni. Hún nýtur félagsskaparins við afburða samverkafólk sem magnar áhrif tónsmíða hennar."
Lúxus upplifun - Ég
Útgefandi: Jörðin
"Að segja að Róbert Örn Hjálmtýsson hafi einstaka sýn á það hvernig setja eigi saman popplag nær engan veginn utan um þær ótrúlegu leiðir sem hann fer inn í þriggja mínútna poppformið. Og það ótrúlegasta við þetta allt saman er að það virkar."
Búum til börn - Moses Hightower
Útgefandi: Staka
"Tónlistin á frumsmíð Moses Hightower er óvenjuleg blanda af sígildri sálartónlist og íslensku poppi með fyrirtaks textum. Útkoman er ofursvöl og full af tilþrifum og tilfinningu.“
Last train home - Kalli
Útgefandi: Smekkleysa
"Kalli hefur mjög gott tak á aðgengilegu, nútíma kántríi, og sýnir það svo um munar á þessari skotheldu skífu. Lagasmíðarnar flottar og söngurinn afbragð"
Kimbabwe - Retro Stefson
Útgefandi: Kimi Records
"Retro Stefson er einstök í íslenskri poppflóru. Eins og á fyrri plötunni er tónlistin á Kimbabwe hress blanda af poppi og heimstónlist, en nú er sveitin búin að þétta útsetningarnar og auka fjölbreytnina enn frekar.“
Dómnefnd:
Andrea Jónsdóttir
Arnar Eggert Thoroddsen
Árni Óskarsson
Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Helgi Jónsson
Jónatan Garðarsson
Pétur Grétarsson-ritari
Trausti Júlíusson
Vernharður Linnet