Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í 17. skipti í Þjóðleikhúsinu 8. mars 2011.

Verðlaunahafar fyrir verk ársins 2010 eru:

Hljómplata ársins - Sígild og samtímatónlist

 

hymnodia sacra 

 

Hymnodia Sacra - Íslenskt sálmasafn frá 18. öld
Flytjendur: Kammerkórinn Carmina, Nordic Affect, Árni Heimir Ingólfsson. Útgefandi: Smekkleysa.
Platan byggir á merkilegum rannsóknum á tónlistararfi liðinna alda en hér tekst hið vandasama, að flétta saman rannsóknum og tónlistarflutningi svo úr verður einstaklega falleg og lifandi túlkun á tónlist liðinna alda.  Mjög vel heppnuð útgáfa.

Hljómplata ársins - Jazz

horn

 

Horn - Jóel Pálsson
Flytjendur: Jóel Pálsson, Ari Bragi Kárason, Eyþór Gunnarsson, Davíð Þór Jónsson, Einar Scheving. Útgefandi: Flugur. Frumlegar og margslungnar tónsmíðar. Þróttmikil sveit afbragðsgóðra hljóðfæraleikara sem vinna vel saman og skapa einkar blæbrigðaríkt og heildstætt verk.

Hljómplata ársins - Rokk/Popp

 

go

 

Go - Jónsi 
Útgefandi: Frakkur/Smekkleysa
"Jónsi notar öll trikkin sem hann hefur lært á Sigur Rósar ferlinum og bætir við glitrandi perlum úr fjársóðskistunni sinni. Útkoman er slík gersemi að það er leitun að annarri eins plötu. Reynsla og öryggi fara saman við ótrúlega næma söngtúlkun, stórfína spilamennsku og fágaða vinnslu."  

Tónlistarflytjandi ársins

Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuill fluttu þrjá síðustu ljóðaflokka Schubert með viku millibili á Listahátíð 2010. Áhrífaríkur flutningur þeirra á þessum helstu ljóðaflokkum tónbókemenntana er þeim sem á hlýddu ógleymanleg stund.

Rödd ársins

Kristinn Sigmundsson stendur á hátindi síns ferils. Auk þess að syngja reglulega á helstu óperusviðum heimsins kom hann fram á hátíðartónleikum á Listahátíðar 2010 og söng þar margar af þeim aríum sem honum standa nærri.

Bjartasta vonin

Ari Bragi Kárason trompetleikari er einhver efnilegasti trompetleikari sem fram hefur komið um árabil. Blæs ferskum vindum inn í jazzlíf þjóðarinnar.

Textahöfundur ársins

Bjartmar Guðlaugsson fyrir textana á Skrýtin veröld með Bjartmari og Bergrisunum.

Tónhöfundur ársins

Ólöf Arnalds fyrir lögin á hljómplötunni Innundir skinni.

Lag ársins

"Hamingjan er hér" af hljómplötunni Allt er eitthvað
Höfundur: Jónas Sigurðsson. Flytjendur: Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtiðarinnar.

Tónverk ársins

Hrím - fyrir hljómsveit
Höfundur: Anna Þorvaldsdóttir. 
Hrím er þétt ofið og afar áhrifaríkt verk, tónmálið sterkt, persónulegt og sannfærandi.

Umslag ársins

 

pólýfónía

 

Sigurður Eggertsson fyrir Pólýfónía með Apparat Organ Quartet

 

Heiðursverðlaunahafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 2011

Þórir Baldursson 

 

Þórir Baldursson tekur á móti heiðursverðlaununum

 

Vinsælasti flytjandinn

Hljómsveitin Dikta var valin vinsælasti flytjandinn í símakosningu, annað árið í röð.

 

Viðurkenning Tónlist.is fyrir framúrskarandi árangur í netheimum tónlistarlífsins

Iceland Airwaves 

 

Viðurkenning frá Reykjavík/Loftbrú

Hljómsveitin Mezzoforte fyrir frumkvöðlastarf sitt í útbreiðslu íslenskrar tónlistar erlendis.

 

Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar flytur lag á Íslensku tónlistarverðlaununum 2011