Hljómplata ársins: Popp/dægurtónlist
Allt fyrir ástina – Páll Óskar
,,Júrótrass” er orð sem notað er yfir hluta evrópskrar danstónlistar. Á vissan hátt fellur tónlistin á þessari plötu undir þennan umdeilda flokk en lyftir honum á hærra plan vegna glæsilegs flutnings, útsetninga og alls frágangs. Lögin eru skemmtileg og melódísk, takturinn frísklegur út í gegn og rofnar aldrei þar sem lögin eru faglega tengd saman, eins og sæmir góðum plötusnúði. Textarnir eru kapítuli út af fyrir sig í svona umhverfi; vitræn þroskasaga manns í gegnum brokkgengt ástalíf.
Frágangur/Hold er mold – Megas & Senuþjófarnir
Megas sendi frá sér plötutvennuna Frágang og Hold er mold með Senuþjófunum. Á þessum tveim plötum eru alls 28 lög sem sýna að það er engin þurrð hjá Megasi. Hann á greinilega nóg eftir enn. Í útsetningunum er horft til baka til hans gömlu meistaravera frá áttunda áratugnum, og textar, lög og söngur Megasar eru framúrskarandi.
Tímarnir okkar – Sprengjuhöllin
Sprengjuhöllin boðar endurreisn íslenska poppsins. Tímarnir okkar stendur undir öllu lofinu sem á hana hefur verið hlaðið; lagasmíðarnar eru grípandi, útsetningarnar skemmtilegar og textarnir ná að fanga tíðarandann á einstakan hátt.
Hljómplata ársins: Rokk/jaðartónlist
Benny Crespo's Gang Þessi fyrsta og nafnlausa plata hljómsveitarinar inniheldur rokkaða, taktskipta og nokkuð flókna tónlist, sem minnir á ,,prog”-risa 8. áratugarins að viðbættum ferskum og nýjum vindum. Meðvitund um fortíðina í tónlist, frjó hugsun, áhugi og kraftur einkennir Benny Crespo´s gang, að viðbættum hæfileikum liðsmanna sveitarinnar.
Mugiboogie – Mugison
Áður einsmannssveitin Mugison stígur djarflega fram á sjónarsviðið á ný og í þetta skiptið er Mugison studdur af einkar kraftmikilli hljómsveit og heppnast sú blanda afar vel. Gargandi hammond, rokk og ról leitt af örvæntingarfullri og villimannslegri tjáningu Mugisonar. Frábærar lagasmíðar þar sem hver einasti tónn er framreiddur með blóði, svita og tárum.
Sleepdrunk Seasons – Hjaltalín
Það vantar ekki metnaðinn hjá hljómsveitinni Hjaltalín. Lagasmíðarnar á Sleepdrunk seasons eru flóknari en gengur og gerist í dægurtónlist en jafnframt melódískar og grípandi. Útsetningarnar eru óvenjulegt sambland af poppi og klassík og söngur og annar flutningur eru til fyrirmyndar.
Hljómplata ársins: Ýmis tónlist
Frá heimsenda – Forgotten lores
Forgotten lores hefur allt til að bera sem góð hipp-hopp sveit getur óskað sér: góða taktsmiði og plötusnúða og rappara í sérflokki. Þeir Byrkir, Diddi Fel og ClassB hafa bæði hugmyndaflug og gott vald á íslenskri tungu og auk þess ótrúlegt flæði. Þeir fara á kostum á Frá heimsenda sem kom út í árslok 2006.
Við & við – Ólöf Arnalds
Við og við er frumlegasta og sérstakasta plata ársins að margra mati. Fallegar laglínur, sérstakur söngstíll og persónulegir textar eru meðal þess sem einkennir þessa einstöku plötu sem mætti staðsetja einhversstaðar á mörkum popps og þjóðlagatónlistar.
Volta – Björk
Björk heldur áfram að sækja á nýjar slóðir tónlistarlega á Volta. Hún býr m.a. til tryllta takta með Timbaland, syngur af tilfinningaþrunginni innlifun með Antony og hverfur aftur til anda pönksins í Declare independence. Malískur kora-snillingur og íslensk lúðrasveit setja líka mark sitt á þessa fjölbreyttu plötu.
Tónlistarflytjandi ársins
Björk
Björk fylgir plötunni sinni Volta eftir með heimstónleikaferð sem hófst með stórtónleikum í Laugardalshöll 9. apríl 2007. Þar flutti hún bæði ný lög og gömul í gjörbreyttum útsetningum, m.a. með fulltingi tíu stúlkna lúðrasveitar. Þeir tónleikar voru einn af hápunktum ársins fyrir marga, og ekki bara Íslendinga.
Gusgus
Tónleikar með Gusgus á NASA er fyrir löngu orðinn fastur punktur í tilveru margra íslenskra tónlistaráhugamanna. Þeir hafa undanfarin ár oft verið einn af hápunktum Airwaves-hátíðarinnar og árið 2007 stappfyllti Gusgus NASA hvað eftir annað og viðtökurnar voru alltaf jafn góðar.
Megas & Senuþjófarnir
Samstarf Megasar og Senuþjófanna hefur tekist sérstaklega vel. Þeir gerðu saman plöturnar Frágang og Hold er mold og fylgdu þeim eftir með tónleikaferð um landið. Hrifningin var jafn mikil í Bræðslunni á Borgarfirði eystra, Edinborgarhúsinu á Ísafirði og í Laugardalshöllinni í Reykjavík.
Lag ársins
Allt fyrir ástina – Niclas Kings/Daniela Vecchia/Örlygur Smári/Páll ÓskarÞrumandi danstónlist, fín melódía og grípandi viðlag með vel saman settum texta, m.a. með tilvitnunum í Sofðu unga ástin mín og kærleiksboðskap Páls postula. Flutningur er glæsilegur og undirstrikast af frábærum söng Páls Óskars. Lag sem heillaði fólk á ýmsum aldri árið 2007. Eitt mest spilaða lag ársins í útvarpi.
Englar & dárar – Ólöf Arnalds
Hér tvinnast saman í texta og tónum fortíð og nútíð í gegnum einstakan flutning Ólafar, bæði söng og hljóðfæraleik, og útkoman er bæði frumleg og alþýðleg. Lagið er skemmtilegt og grípandi, textinn fellur við það eins og flís við rass, bæði alvarlegur og fyndinn, forn og nútímalegur í senn: ,,Miðri Ártúnsbrekku í/erum stödd í Brasilí...Læriló og ríngalíng”; Englar og dárar bæði fanga fegurðarskynið og kitla skopskynið.
Goodbye July/Margt að ugga – Högni Egilsson
Hljómsveitin Hjaltalín vakti verðskuldaða athygli með þessu sérstæða lagi snemma árs 2007. Þetta er ein djarflegasta og óhefðbundnasta tónsmíð sem hljómað hefur í vinsældaspilun í seinni tíð. Eins og nafnið gefur til kynna tvinnast saman ólík stef, grípandi taktur og hressilegt viðlag á ensku um hana Elaine sem hverfist svo skyndilega yfir í tregafulla strengi og flutning á íslenskri þjóðvísu.
Verðbólgin augu – Björn Jörundur Friðbjörnsson
Björn Jörundur sannar einu sinni enn að hann er meðal okkar langbestu laga- og textahöfunda og hér fangar hann núið á kaldhæðinn hátt mitt í evru-umræðunni. Lagið er grípandi og flutningurinn frábær. Hvað sem verður um blessaða krónuna þá yrðu Verðbólgin augu henni verðugur minnisvarði.
Verum í sambandi – Snorri Helgason/Bergur Ebbi
Með þessu fallega og skemmtilega lagi, sem margan hefur snert djúpt, söng Sprengjuhöllin sig að innstu hjartarótum þjóðarinnar. Snorri Helgason fer fyrir Sprengjuhöllinni í þessum angurværa texta sínum, um sár sambandsslit, sem fólk hefur tekið undir með af mikilli innlifun.
Lagahöfundur ársins
MegasÞað eru tæplega 30 ný lög eftir Megas á Frágangi og Hold er mold og flest þeirra standa vel fyrir sínu. Þau eru staðfesting á því að Megas er einn af öflugustu lagasmiðum landsins.
Snorri Helgason (Sprengjuhöllinni)
Sprengjuhöllin átti þrjú af vinsælustu lögum ársins 2007: Verum í sambandi; Glúmur og Keyrum yfir Ísland. Þau eru öll samin af Snorra Helgasyni. Frekari rökstuðningur er óþarfur.
Högni Egilsson (Hjaltalín)
Tónlistin á Sleepdrunk seasons streymir áfram eins og fljót með einstaka flúðum öðruhverju á leiðinn að fallegum óshólmum. Dægurtónlist og klassík fallast í faðma í hugvitsamlegum útsetningum á fjölbreyttum lagasmíðum Högna.
Textahöfundur ársins
Bergur Ebbi Benediktsson (Sprengjuhöllinni)Bergi tekst á einstakan hátt að fanga tíðarandann í íslensku samfélagi með hversdagslegu og hnyttnu orðfæri. Honum liggur margt á hjarta og textarnir eru því oft mikill orðaflaumur í stað hefðbundinna kvæða. Bergur er beinskeittur og mælir fyrir munn sinnar kynslóðar, á hennar tíma – nákvæmlega í nútíðinni.
Megas
Megas er með lærðustu mönnum í kveðskap á Íslandi, en það nægir þó ekki til að búa til góða dægurlagatexta. Megas hefur aldrei setið fastur í reglum heldur bætir stöðugt við gamlan arf okkar með tilraunum og frumleika. Hann hefur verið sjálfkjörinn í textahöfundaútnefningarflokkinn allt frá því að fyrsta platan hans kom út og er svo enn, næstum fjórum áratugum síðar.
Þorsteinn Einarsson (Hjálmum)
Það eru fáir textahöfundar af ungu kynslóðinni sem leyfa sér að vera með meiningar, vera pólitískir og áleitnir. Textar Þorsteins endurspegla hugsjónamanninn, þeir eru gagnrýnir en afar ljóðrænir í senn. Honum tekst að yrkja falleg ljóð til náttúrunnar og lítilmagnans án þess að gerast klisjukenndur. Kveðskapur hans er tímalaus.
Söngkona ársins
BjörkLögin á Volta eru mjög margvísleg og gefa Björk sem aldrei fyrr tækifæri til að sýna hið mikla vald sem hún hefur á röddinni og breiddina sem hún hefur í túlkun. Hér er allt frá barnslegu hvísli yfir í gargandi pönk og túlkunin undirstrikar umfjöllunarefnið hvert svo sem það er.
Eivör
Nýjasta plata Eivarar, Mannabarn, kom út bæði á ensku og færeysku. Söngur hennar á báðum tungumálunum er glæsilegur að vanda en færeyska útgáfan skorar líklega enn hærra hjá löndum hennar og flestum Íslendingum. Eivör er fædd með einstaka söngrödd og söngstíllinn er bæði náttúrulegur og agaður í senn, sem kemst allt vel til skila á Mannabarni.
Urður Hákonardóttir (Gusgus)
Í Urði býr þeldökk og þokkafull sálarsöngkona sem sómir sér vel í teknóhljóðheimi Gusguss. Það eru fáar íslenskar söngkonur sem geta leikið þennan stíl eftir sem Urður hefur tileinkað sér og hefur orðið frábært vald á.
Söngvari ársins
Högni Egilsson
(Hjaltalín)
Raddbeiting Högna er mikilvægt krydd í tónlist Hjaltalíns og þessi sérstaka hljómsveit verður enn eftirtektarverðari vegna hennar. Högni er söngvari með áberandi karakter.
Mugison
Mugison syngur af algjörri innlifun og tilfinningar og geðsveiflur eiga sér greiða leið í gegnum barka hans. Hann var góður strax á fyrstu plötu en er kominn enn lengar á þessari þriðju. Óhamið náttúrubarn út í gegn.
Páll Óskar
Páll Óskar er einn af bestu söngvurum þjóðarinnar og er búinn að vera lengi. Það er ekki bara að röddin sé falleg, heldu er meðferð Páls á texta og tilfinning fyrir innihald hans áberandi góð, sem kemur einkar vel fram á Allt fyrir ástina.
Dómnefnd fjölbreytt tónlist
Tilnefningar síðasta árs