Björgvin Halldórsson

Heiðursverðlaunahafi Íslensku tónlistarverðlaunanna 1994

Björgvin Halldórsson er tvímælalaust einn dáðasti tónlistarmaður þjóðarinnar og hefur sannarlega sett mark sitt á sögu íslenskrar dægurtónlistar allt frá árinu 1966 þegar hann kom fram með hljómsveitinni Bendix úr Hafnarfirði. Fáeinum árum síðar skein frægðarsól Björgvins skært þegar hann söng með hljómsveitinni Ævintýri og talað var um algjört Bjögga-æði sem sveif á íslensku þjóðina. Hann var kosin vinsælasta poppstjarnan árið 1969 og mætti jafnvel segja að hann hafi haldið þeim titli í gegnum afar farsælan feril til nokkurra áratuga.

Ef maður vill ekki að fólk lýsi frati á það sem maður er að gera, má maður ekki lýsa frati á það heldur. Þess vegna er ég ofsalega „commercial“ við alla - hvort sem mér líkur betur eða verr. En yfirleitt kann ég ákaflega vel við, ja, aðdáendur mína og ég á þeim allt að þakka.

Björgvin Halldórsson

Í bókinni Stuð vors lands frá árinu 2012 er þetta haft eftir Björgvini en þar var meðal annars farið yfir fyrstu ár á ferli hans. Gunnar Hjálmarsson skráði.

Björgvin á að baki ríkan sólóferil en lék með fjölda hljómsveita í gegnum tíðina. Þannig söng hann meðal annars með Bendix, Ævintýrum, Flowers, Change, Hljómum, Ðe lónlí blú bojs, Brimkló, Sléttuúlfunum og HLH-flokknum. Björgvin lét vel af sér kveða í ýmsum lagasmíðum, fyrir kvikmyndir og leikhús, tók oft þátt í Söngkeppni Sjónvarpsins og varð fulltrúi okkar í Eurovision keppninni árið 1995 með lagið Núna. Björgvin söng fjölda af vinsælustu dægurlögum þjóðarinnar allt þar til yfir lauk og hélt úti vinsælli tónleikaröð fyrir jól í árafjöld þar sem landsþekkt tónlistarfólk hafði unun á að koma fram með honum og starfa með.

Björgvin Halldórsson hlaut fyrstu heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna þegar þau voru haldin í fyrsta sinn, í þeirri mynd sem þau eru nú. Sú verðlaunahátíð fór fram á Hótel Sögu í Reykjavík í apríl 1994. Það var rokkdeild FÍH sem kom hátíðinni á koppinn og þar á meðal voru Stefán Hjörleifsson, Eiður Arnarsson og Gunnlaugur Briem sem höfðu þar veg og vanda.


Er ég orðinn svona gamall?“ var þá haft eftir nýkrýndum heiðursverðlaunahafanum en þess má geta að Björgvin var þarna ekki nema rétt rúmlega fertugur. Björgvin átti þá sem betur fer eftir að gefa af sér í fjölmörg ár og átti eftir að afreka margt. Það er sannarlega viðeigandi að Björgvin Halldórsson sé sá fyrsti sem hlaut Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna. Honum er þakkað fyrir tónlistina.