16. mar. 2023

Plötuumslag ársins í samvinnu við FÍT

Þegar tilnefningar til tónlistarverðlauna ársins voru kynntar á dögunum var ekki tilgreint frá hvaða plötuumslög hefðu hlotið tilnefningar fyrir umslagshönnun ársins. Ástæðan var sú nýbreytni að Íslensku tónlistarverðlaunin eru nú í fyrsta sinn í samstarfi við Félag íslenskra teiknara sem starfrækti nefnd hönnuða er fór yfir innsendingarnar.

Í vikunni var það loks kunngert hver plötuumslögin fimm væru sem hlytu tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem og FÍT verðlauna. FÍT verðlaunin verða afhent nú á föstudaginn 17. mars í Grósku kl. 17.00. Hlutverk FÍT verðlaunanna er að veita því viðurkenningar sem skarar fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum. Það kemur því í ljós á föstudag hver það verða sem hljóta fyrstu Íslensku tónlistarverðlaun ársins, nokkrum dögum áður en verðlaunahátíðin fer fram í Hörpu.

Eftirtalin plötuumslög eru tilnefnd sem þau bestu árið 2022:

  • Fossora – Björk Guðmundsdóttir, hönnun; Björk Guðmundsdóttir og James Merry
  • Models of Duration – John McCowen, hönnun; John McCowen
  • Owls – Magnús Jóhann, hönnun; Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
  • Amatör – Unnsteinn, hönnun; Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
  • While We Wait – RAKEL, Salóme Katrín og ZAAR, hönnun; Aron Freyr Heimisson

Við óskum þeim sem komu að þessum vel heppnuðu plötuumslögum til hamingju með tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og FÍT verðlaunanna.