09. mar. 2023

Þessi voru tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru tilkynntar í dag á veitingastaðnum Hnossi á jarðhæð Hörpu. Tónlistarárið 2022 var æði skrautlegt, stappfullt af nýjum stjörnum í bland við eldri, uppfullt af glæsilegum viðburðum af öllum toga og útgáfa í öllum flokkum tónlistar í sérlegum blóma. Allt þetta má glöggt sjá á tilnefningunum, sem eru afar fjölbreyttar í ár og breiddin mjög mikil.
Fjöldi innsendinga var í meira lagi, tæplega 800 talsins og verkefnin þar undir mýmörg í öllum flokkum tónlistar. Einnig vekur það athygli dómnefndarfólks sem og aðstandenda hvernig landamærin milli tónlistarstefna eru að mást út þar sem mörg tónskáld og flytjendur flakka á milli þeirra og dvelja ekki við að flokka sín verkefni sérstaklega. Það rímar einnig við þá flóðbylgju ungs og efnilegs tónlistarfólks sem er við það að springa út í sínum fjölbreyttu verkefnum

Talsverðar breytingar voru gerðar á verðlaunaflokkum í ár, sameinað undir stærri flokka og samræmt milli helstu yfirflokkana. Verðlaunað er fyrir tónlistarflutning, söng, lög/tónverk og hljómplötur eða stærri verk. Nokkur verðlaun eru veitt þvert á alla flokka, s.s eins og fyrir upptökustjórn, myndbönd, viðburði og umslagshönnun. Síðastnefndu verðlaunin verða nú í fyrsta sinn veitt í samvinnu við Félag íslenskra teiknara á svokölluðum FÍT verðlaunum sem afhent verða seinna í mánuðinum.

Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Silfurbergi, Hörpu, miðvikudaginn 22. mars og verða þau í beinni útsendingu á RÚV. Kynnar á verðlaunahátíðinni verða leik- og söngdrottningin Selma Björnsdóttir og rapparinn og leiklistarneminn Kristinn Óli Haraldsson (Króli).

Tónlistarflytjendur ársins

Djasstónlist
Andrés Þór
Haukur Gröndal
Marína Ósk
Rebekka Blöndal
Stórsveit Reykjavíkur

Sígild og samtímatónlist
Barokkbandið Brák
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Kammersveit Reykjavíkur
Sæunn Þorsteinsdóttir
Víkingur Heiðar Ólafsson

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
Una Torfadóttir
Magnús Jóhann Ragnarsson
Friðrik Dór Jónsson
FLOTT

Önnur tónlist
Lón
Mugison
Magnús Jóhann
Arnar Guðjónsson
Guðrún Ólafsdóttir (RÚN)

Söngur ársins

Djasstónlist
Marína Ósk
Rebekka Blöndal
Silva Þórðardóttir
Steingrímur Teague
Stína Ágústsdóttir

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
Ásgeir Trausti Einarsson
Margrét Rán Magnúsdóttir
Ylfa Þöll Ólafsdóttir (Dead Herring)
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
Una Torfadóttir

Sígild og samtímatónlist
Andri Björn Róbertsson
Hildigunnur Einarsdóttir
Dísella Lárusdóttir
Oddur A. Jónsson
Ólafur Kjartan Sigurðarson

Lög/tónverk ársins

Djasstónlist
Another Time – ASA Trio + Jóel Pálsson
Tónverk: Scott McLemore

Milder’s Mailbox – Baldvin Hlynsson
Tónverk: Baldvin Hlynsson

Prikó – ADHD
Tónverk: ADHD

Ray of Light – Haukur Gröndal
Tónverk: Haukur Gröndal

The Moon and the Sky – Marína Ósk
Tónverk: Marína Ósk

Sígild og samtímatónlist
Fasaskipti – Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Tónverk: Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Texti: Þórdís Helgadóttir

FEAST – Daníel Bjarnason
Tónverk: Daníel Bjarnason

Gemæltan – Veronique Vaka
Tónverk: Veronique Vaka

Glerhjallar – Sveinn Lúðvík Björnsson
Tónverk: Sveinn Lúðvík Björnsson

Guðspjall Maríu (The Gospel of Mary) – Hugi Guðmundsson
Tónverk: Hugi Guðmundsson
Texti: Niels Brunse og Nila Parly

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
Vinir – Elín Hall
Lag: Elín Sif Halldórsdóttir, Reynir Snær Magnússon
Texti: Elín Sif Halldórsdóttir

Á óvart (ásamt Kött Grá Pjé & Urður) – Benni Hemm Hemm
Lag og texti: Benedikt Hermann Hermannsson, Atli Sigþórsson

Rhodos – Ultraflex
Lag og texti: Katrín Helga Andrésdóttir og Kari Jahnsen

Klisja – Emmsjé Gauti
Lag: Emmsjé Gauti og Þormóður Eiríksson
Texti: Emmsjé Gauti

Ungfrú Ísland – Kvikindi
Lag: Friðrik Margrétar Guðmundsson, Brynhildur Karlsdóttir
Texti: Brynhildur Karlsdóttir

Bleikur og blár – Friðrik Dór
Lag og texti: Friðrik Dór Jónsson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson

Snowblind – Ásgeir Trausti
Lag: Ásgeir Trausti Einarsson
Texti: Ásgeir Trausti Einarsson, Pétur Ben

Allt (ásamt Bngrboy) – russian.girls
Lag: russian.girls & Bngrboy
Texti: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko

Uppá rönd (ásamt GDRN) – Hjálmar
Lag: Sigurður Guðmundsson
Texti: Sigurður Guðmundsson og Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir

EF ÞEIR VILJA BEEF (ásamt Joey Christ) – Daniil
Lag og texti: Daníel Moroshkin og Jóhann Kristófer Stefánsson

Önnur tónlist
the world is between us – Árný Margrét
Lag og texti: Árný Margrét

We could stay – Ólafur Arnalds og Josin
Lag: Ólafur Arnalds & Josin
Texti: Josin

Haustdansinn – Mugison
Lag og texti: Mugison

Runaway (ásamt RAKEL) – Lón
Lag og texti: Ásgeir Aðalsteinsson, Ómar Guðjónsson og Valdimar Guðmundsson

Rome – Jelena Ćirić
Lag og texti: Jelena Ćirić

Hljómplata ársins

Sígild og samtímatónlist
Fikta – Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Quanta – Einar Torfi Einarsson
Two Sides – Barokkbandið Brák
VÍDDIR – Bára Gísladóttir
Windbells – Hugi Guðmundsson og Kammersveit Reykjavíkur

Kvikmynda- og leikhústónlist
The Essex Serpent – Herdís Stefánsdóttir og Dustin O’Halloran
Jaula – Snorri Hallgrímsson
OWLS – Magnús Jóhann
Surface – Ólafur Arnalds
Un Monde Nouveau – Arnar Guðjónsson

Djasstónlist
ADHD 8 – ADHD
Aether – Iceland’s Liberation Orchestra
Another Time – ASA Trio + Jóel Pálsson
Five angles – Haukur Gröndal
One Evening in July – Marína Ósk

Popp-, rokk-, hipp hopp- og raftónlist
Ungfrú Ísland – Kvikindi
Hvernig ertu? – Prins Póló
Vök – Vök
Dætur – Friðrik Dór
12:48 – gugusar

Önnur tónlist
they only talk about the weather – Árný Margrét
Fossora – Björk
Tempó Prímó – Uppáhellingarnir
While We Wait – RAKEL, Salóme Katrín & ZAAR
Thankfully Distracted – LÓN

Upptökustjórn ársins

Two sides – Barokkbandið Brák
Upptökustjórn: Ragnheiður Jónsdóttir

More Than you Know – Silva Þórðardóttir & Steingrímur Teague
Upptökustjórn: Styrmir Hauksson, Ragna Kjartansdóttir, Steingrímur Teague & Silva Þórðardóttir

Time is on my Hands – Ásgeir
Upptökustjórn: Guðmundur Kristinn Jónsson & Ásgeir Trausti Einarsson

Fossora – Björk
Upptökustjórn: Björk Guðmundsdóttir

OWLS – Magnús Jóhann
Upptökustjórn: Magnús Jóhann Ragnarsson

Tónlistarviðburður ársins

ErkiTíð 2022
30 ára afmælistónleikar Stórsveitar Reykjavíkur
Moses Hightower & Prins Póló í Gamla Bíó
Guðspjall Maríu
Apparition

Tónlistarmyndband ársins

Snowblind – Ásgeir
Leikstjórn: Erlendur Sveinsson

Drift – Daniel Wohl
Leikstjórn: Máni M. Sigfússon

The world is between us – Árný Margrét
Leikstjórn: Erlendur Sveinsson

Radioflakes – Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Leikstjórn: Stephan Stephensen

Ósýnileg – Eliza Newman
Leikstjórn: Margrét SeemaTakyar

Sigra Heiminn – Kvikindi
Leikstjórn: Birnir Jón Sigurðsson

Cold Feet – Bríet
Leikstjórn: Bríet Ísis Elfar

Það vex eitt blóm fyrir vestan – Rún
Leikstjórn: Viktor Sigurjónsson

Rome – Jelena Ćirić
Leikstjórn: Sigurlaug Gísladóttir

Ancestress – Björk
Leikstjórn: Andrew Thomas Huang

Plötuumslag ársins

Fossora – Björk Guðmundsdóttir
Hönnun: Björk Guðmundsdóttir og James Merry

Models of Duration – John McCowen
Hönnun: John McCowen

Owls – Magnús Jóhann
Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson

Amatör – Unnsteinn
Hönnun: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson

While We Wait – RAKEL, Salóme Katrín og ZAAR
Hönnun: Aron Freyr Heimisson