Íslensku tónlistarverðlaunin 2026

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Hörpu og beinni útsendingu á RÚV miðvikudagskvöldið 18. mars 2026. Fram komu Páll Óskar og Benni Hemm Hemm, Sara Magnúsdóttir og hljómsveit, Sigurgeir Agnarsson, Birnir og heiðursverðlaunahafarnir Todmobile.

Okkur listasendifulltrúum Íslands er afar mikilvægt að fá regulega byr undir okkar flökkuvængi að heiman, líkt og þið nú sendið til mín. Ég hlakka til að sjá ykkur öll, og þá sérstaklega þegar íslensk ópera hefur öðlast það heimili og sess sem hún á skilið. Takk elsku vinir!

Ólafur Kjartan Sigurðarson, söngvari ársins 2024

Móttöku innsendinga til verðlaunanna lauk um miðjan janúar og er fjöldi þeirra gleðiefni. Dómnefndaakademía Íslensku tónlistarverðlauna saman stendur af 4 dómnefndum. Þær eru skipaðar fagfólki í tónlist, útgáfu og framleiðslu viðburða.

Tilnefningar til verðlaunanna voru kynntar í marsbyrjun